Ágætu lesendur
Hér með er bloggsíðu Kínversk- íslenska menningarfélagsins (KÍM) hleypt af stokkunum. Undirritaður hefur verið ráðinn ritstjóri til verksins. Jafnframt er heimasíða félagsins (www.kim.is) í vinnslu og verður virk á næstu dögum.
Umfjöllunarefni bloggsins og heimasíðunar er Kína og samskipti Íslands og Kína. Af nógu er að taka enda er Kína í dag endalaus uppspretta umræðu og skoðanaskipta. Megin áherslan er á að kynna kínverska menningu og samfélag og ber ritstjóri þá von í brjósti að bloggið og vefurinn verði leiðandi í umræðunni um málefni Kína.
Ritstjóri vonast eftir að fá sem flesta að borðinu og hvetur alla sem telja sig hafa eitthvað fram að færa í þessu efni að hjálpa til við að gera þetta blogg og heimasíðu félagsins sem best úr garði. Tekið er við greinum til birtingar á netfangi KÍM, kim@kim.is, einnig má senda póst beint til ritstjóra á netfangið: magnusbj@mi.is
Ákveðið hefur verið að virkja ekki athugasemdakerfi bloggsins en lesendur eru velkomnir að senda inn athugasemdir við greinar beint á ofangreind netföng. Munu þær verða birtar ef þær bæta einhverju við umræðuna.
Magnús Björnsson ritstjóri
Færsluflokkar
| Feb. 2012 | ||||||
| S | M | Þ | M | F | F | L |
|---|---|---|---|---|---|---|
| 1 | 2 | 3 | 4 | |||
| 5 | 6 | 7 | 8 | 9 | 10 | 11 |
| 12 | 13 | 14 | 15 | 16 | 17 | 18 |
| 19 | 20 | 21 | 22 | 23 | 24 | 25 |
| 26 | 27 | 28 | 29 | |||
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (23.2.): 0
- Sl. sólarhring: 2
- Sl. viku: 9
- Frá upphafi: 1014
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 7
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar





