Í dag hélt zhang Boyu, prófessor við Tónlistarháskóla
ríkisins í Beijing, fyrirlestur um þjóðlagahefð og þjóðhætti Awa-þjóðarinnar,
sem býr í Yunnan-fylki í Suðvestur-Kína. Awa-fólkið er álíka fjölmenn þjóð og
Íslendingar, eða um 350.000 manns. Fámennur hópur býr innan landamæra Burma.Í
fyrirlestrinum rakti Zhang í stuttu máli landshætti og sitthvað í
lifnaðarháttum Awa-þjóðarinnar, ræddi um siði og venjur, híbýli, sögu og
trúarbrögð. Þá ræddi hann um hátíðir, tungu þjóðarinnar og tónlist.
Rannsóknir Zhang Boyu hafa einkum beinst að varðveislu
þjóðlegrar tónlistar, en um þessar mundir hallar undan fæti á sumum sviðum
menningar Awa-þjóðarinnar. Lýsti hann því hvernig fólk sækist eftir því að
setjast að í borgum og bæjum, þar sem aðstæður eru með allt öðrum hætti en í
þorpunum. Tungumál Awa-þjóðarinnar hefur látið undan síga fyrir fjölmennari
mállýskum og Mandarín-kínversku, sem unga fólkið tileinar sér. Nú er svo komið
að nokkur hluti ungs fólks getue ekki lengur tjáð sig við foreldra sína á
móðurmáli sínu.
Þá lýsti Zhang þeirri þróun, sem hefur orðið á hátíðum
þjóðarinnar, en flestar þeirra hafa fengið aðra merkingu en áður – erun helst
haldnar ferðamönnum til heiðurs. Þá taldi hann að þjóðleg tónlist væri á miklu
undanhaldi og henni sinntu nú einna helst hópar atvinnufólks.
Fyrirlesturinn var afar fróðlegur. Bar hann saman það sem
hefur gerst á Vesturlöndum þar sem enskan herjar á ýmis tungumál á sama hátt og
ríkiskínverskan herjar nú á tungumál smáþjóðanna, sem búa innan landamæra
ríkisins, ekki vegna þess að málinu sé endilega haldið að fólki, heldur vegna
hins að unga fólkið kýs að taka upp þá þjóðtungu sem flestir skilja. Var
niðurstaða Zhangs sú að þrátt fyrir þetta héldu ýmis einkenni þjóðlegrar
menningar velli hjá Awa-þjóðinni á sama hátt og Vesturlandabúar stæðu vörð um
sitthvað í menningu sinni þrátt fyrir ásókn enskrar og amerískrar menningar.
Það er mikill fengur að því þegar jafnfjölmenntaður
þjóðfræðingur og Zhang Boyu sækir Íslendinga heim. Hann hitti fræði- og
listamenn á sviði íslenskrar menningar og skiptust þeir á upplýsingum. Vonandi
er hér byrjuð þróun sem leiðir til samskipta íslenskra og kínverskra fræðimanna
á sviði þjóðháttafræði og þjóðlegrar tónlistar.
Arnþór Helgason
Formaður KÍM Arnþór Helgason heldur úti skemmtilegri bloggsíðu þar sem finna má þetta í síðustu færslu. Þarna má heyra óm af mikilli mannmergð sem er á leiðinni út í hina gullfallegu Gulaneyju við Xiamen í Fujianhérðaði í Kína.
Þessi krækja er birt hér með góðfúslegu leyfi Arnþórs.
Magnús Björnsson
Hinn 23. janúar síðast liðinn, á fyrsta degi árs drekans að nærri 50 alda sið Kínverja, var viðtal við Arnþór Helgason formann KÍM um ár vatna drekans og siði tengda stjörnuspeki Kínverja, en Arnþór er manna fróðastur um þessi mál. Viðtalið var á Bylgjunni. Hér má nálgast stutta frásögn um viðtalið og viðtalið í heild sinni hér.
Emil Bóasson
Um allan heim eru menn að hugsa um það.
Fáir þó af meiri alvöru en íbúar á lítilli eyju ... er hundruð eldflauga beinast að.
Hvernig á að bregðast við vaxandi mætti Kínverja.
Peking
Rauðar kúlur hanga niður úr loftinu. Ég er að slafra í mig la-mian úr hvítri plastskál með einnota tréprjónum. Eldheit chili súpan er vörn gegn kvefi, a.m.k. hvítlaukurinn sem er í henni held ég og vorlaukurinn. Núðlurnar fylla líka dásamlega vel út í vömbina. Það er kominn hávetur í hérna í Peking. Hætt að kólna, ekki byrjað að hlýna. Frostið fer niður í þetta 6-10 gráður en síðan lyftir hitinn sér kanski rétt yfir frostmarkið upp úr hádeginu. Þó að það sé heldur kaldara hér en í Reykjavík á þessum árstíma er skammdegið minna, bjart frá hálf átta á morgnana til fimm. Þetta eru hátíðarkúlur sem hanga þarna niður úr loftinu á zaocan-staðnum, hengdar upp í tilefni vorhátíðarinnar sem nálgast óðum. Þá fagnar fólk komu vors og upphafi nýss árs samkvæmt fornu kínversku bændadagatali. Að þessu sinni ber hátíðina upp 23. janúar. Þá hefst ár drekans. Einkenni hans eru sögð vera höfðingsskapur þó hann geti víst einnig verið all yfirgangssamur. Drekinn sem prýðir hin opinberu nýársfrímerki að þessu sinni er reyndar ekkert krútt. Ég myndi segja að hann væri frekar ógnvekjandi.
Valdið
Súperskvísurnar eru hættar, frá og með fyrsta þessa mánaðar það best ég veit. Miðstjórn ákvað þetta í haust í tengslum endurskoðun á stefnu í menningarmálum. Já, nú er þrengt að skemmtiefni á öllum vígstöðvum. Í staðinn er keyrt á áróðri um Flokkinn, samheldni þjóðarbrotanna í landinu, óhæfu Japana í heimsstyrjöldinni o.s.frv. Listamönnum, mannréttindafrömuðum og öðrum talsmönnum málfrelsis er stefnt fyrir dómstóla. Þetta er í raun sorgarsaga Kínverska Alþýðulýðveldisins í hnotskurn: Leiðtogarnir reyna að virkja mannvitið til að til að byggja upp framleiðslugetu. Um leið og alþýðan sýnir merki um frumlega hugsun er hún fjötruð. Fyrst fyrir barðinu á ákvörðun miðstjórnar í haust var HST-sjónvarpsstöðin sem hefur verið með á dagskránni hina feikivinsælu sjónvarpsþætti Súperskvísur. Forstjóri stöðvarinnar hr. Li Hao segir: „hér eftir verður aðeins sent út efni er stuðlar að bættu siðferði og almannaöryggi auk þátta með hollráðum varðandi heimilisstörfin".
Taívan
Kína var aðalmálið í forsetakosningunum á Taívan sl. laugardag. Tæknilega ríkir stríðsástand milli ríkjanna tveggja. Bæði gera tillkall til yfirráða yfir öllu Kína, meginlandinu og Taívan-eyju. Hvorugt ríkið viðurkennir hitt formlega. Bein átök hafa þó legið niðri síðan á sjötta áratugnum. Kosningabaráttan stóð á milli sitjandi forseta hr. Ma Ying-jeou og frú Tsai Ing-wen. Mjótt var á mununum en að lokum var það hr. Ma sem sigraði. Flokkur hans hans Kuomintang (KMT) vill efla viðskipti við Kína, jafnvel taka upp viðræður um friðarsáttmála við fyrsta tækifæri. Flokkur frú Tsai Lýðræðislegi framfaraflokkurinn (DPP) talar hins vegar fyrir því að Taívan eigi að líta á sig sem sjálfstætt ríki óháð Kína. Niðurstöður kosninganna draga úr spennu í samskiptum Kína og Taívans. Kínversk stjórnvöld voru fyrirfram búin að vara við því að tengslin gætu skaðaðst ef frú Ing færi með sigur af hólmi. Á hinn bóginn gjalda margir varhug við flaðri KMT upp um herrana í Peking, óttast að það kunni að leiða til vaxandi íhlutanar þeirra og sameiningar ríkjanna á ólýðræðislegum forsendum.
Sögubrot
Taívan er eyja skammt undan suðaustur-strönd meginlands Kína. Japanir fóru þar með völd frá 1895. Eftir uppgjöf þeirra í heimsstyrjöldinni 1945 féllu yfirráð í hendur Kína sem þá var stjórnað af Kuomintang-flokknum (KMT). Strax eftir heimsstyrjöldina brast á borgarastríð milli þeirra og kommúnista. KMT fór halloka og hörfaði loks með ríkisstjón sína til Taívans árið 1949. Ekki hefur verið unndirrtiaður friðarsamningur milli Kína og Taívans. Bæði löndin gera tilkall til yfirráða yfir öllu Kína. Taívan nýtur stuðnings Bandaríkjamanna í þessu þrátefli. Framan af einkenndist stjórnarfar á Taívan af einræði KMT. Þjóðartekjur á mann jukst samt mjög hratt. Á tíunda áratugnum var ráðist í lýðræðisumbætur. Í fyrstu frjálsu forsetakosningunum árið 2000 sigraði Chen Shui-bian frambjóðandi  Lýðræðislega framfaraflokksins (DPP). Hann vildi að Taívan afsalaði sér tilkalli til valda á meginlandinu en lýsti yfir formlegu sjálfstæði Taivan-eyju. Þetta skapaði spennu í samskiptunum við Kína. Chen hrökklaðist frá völdum árið 2008 vegna spillingarmála. Við tók sitjandi forseti Ma Ying-jeou.
Stefán Úlfarsson http://blogg.visir.is/kinastefan/
Jól eru haldin hátíðleg í flestum ríkjum
heimsins. Kína er þar engin undantekning.
Jólahald hefur orðið æ vinsælla í Kína eftir
því sem vestræn áhrif hafa aukist og efnahagur batnað. Á þetta einkum við um
stærstu borgirnar. Víða um landið eru kristnar kirkjur og þar sem kristnir
söfnuðir eru halda menn jól.
Sögur hafa farið af því að ásókn í
miðnæturmessu á jólanótt sé svo mikil að kirkjurnar rúmi vart þann fjölda sem
þangað sækir. En flestir, sem gera sér dagamun um jólaleytið í Kína, hugsa
lítið um uppruna þessarar kristnu hátíðar. Hjá þeim eru jólin eins konar
aðdragandi kínversku nýárshátíðarinnar, sem er meginhátíð landsmanna.
Á umliðnum árum hefur það færst í vöxt að fólk
skiptist á jólagjöfum. Jólin þykja kjörin til þess að gefa vinum og þeim, sem
fólki þykir vænt um, jólagjafir og margir gera sér dagamun í mat og drykk. Víða
skreytir fólk jólatré, sem í Kína eru yfirleitt kölluð „ljósatré" og börn hengja upp músastiga í þeirri von að
jólasveinninn (圣诞老人) færi þeim gjafir.
Jólin í stórborgunum markast mjög af aukinni
verslun, miklum ljósaskreytingum og stórveislum (jólaboðum) sem haldin eru á
aðventunni. Alþjóðaútvarpið í Beijing spurði fyrir nokkru vegfarendur um
ástæður þess að haldin væru jól. Örfáir vissu eitthvað um Jesúm Krist, en
flestir sögðu að jólin væru hátíð gleði, veislna og góðs matar. Að sögn
fréttamannsins fer misjafnt orð af þessum jólaboðum, einkum þar sem unglingar
eiga í hlut. Einn viðmælandinn hafi orð á því að engin ástæða væri til að taka
upp vestræna hátíð, ef engin siðfræðileg eða trúarleg gildi fylgdu henni. Því
væri Kínverjum nauðsynlegt að finna hátíðinni einhvern annan tilgang en þann að
skemmta sér og eyða fé.
Arnþór Helgason
Morgunblaðið birti laugardaginn 10. desember
viðtal við Huang Nubo. Vegna fyrri skrifa á þessari bloggsíðu er viðtalið birt
hér að neðan með leyfi Morgunblaðsins.
Arnþór Helgason
Viðtal: Sigrún Rósa Björnsdóttir, sigrunrosa@mbl.is
Fjárfestirinn Huang Nubo, sem á dögunum var
hafnað um undanþágu til að kaupa um 72% af 300 ferkílómetra landi Grímsstaða á
Fjöllum, segist hafa orðið ráðvilltur þegar hann hafi í kjölfar þess að
innanríkisráðherra birti ákvörðun sína fengið þær upplýsingar að hægt væri að
halda viðræðum áfram, sem hann er reiðubúinn að gera. „Kannski er þetta
séríslensk leið til að gera hlutina," segir Huang en Morgunblaðið átti viðtal
við hann í gegnum tölvupóstssamskipti.
Hann segist persónulega ekki hafa neitt á móti
innanríkisráðuneytinu en gagnrýnir málsmeðferðina harðlega og segist ráðvilltur
eftir að hafa lesið svarið frá ráðuneytinu. „Ef ég var að kaupa of stórt land
hefði ég búist við því að það væru nákvæm ákvæði í lögum ykkar um hámarksstærð
þess lands sem erlendum fjárfestum er leyfilegt að kaupa. Það bæði ruglar
fjárfesta og dregur úr vilja þeirra til að fjárfesta ef ekki fást skýr svör.
Það mega alls ekki vera handahófskenndar ákvarðanir sem byggjast á velþóknun
eða vanþóknun."
Huang segist enn standa við þær fyrirætlanir
sínar að byggja upp keðju norrænna ferðaþjónustustaða. „Upphaflega var ætlunin
að gera það frá Íslandi, stofna höfuðstöðvar í Reykjavík og ráða starfsfólkið
þaðan," segir Huang. Það myndi síðan finna fjárfestingarmöguleika á
Norðurlöndum sem yrði farið í skref fyrir skref. „Hins vegar lítur ekki út
fyrir að það muni ganga. Geti ég ekki fjárfest á Íslandi verð ég í sambandi við
viðeigandi stofnanir í Finnlandi, Danmörku og Svíþjóð." Sú vinna sé þegar hafin
þar sem stofnanir þar hafi þegar reynt að hafa samband. Á næstu einu til
tveimur árum kanni starfsfólk á hans vegum fjárfestingarmöguleika innan þessara
landa áður en hann taki svo ákvörðun.
Reiðubúinn í viðræður áfram
Haft hefur verið eftir iðnaðarráðherra,
Katrínu Júlíusdóttur, að Fjárfestingastofa yrði í sambandi við Huang í því
skyni að leiðbeina við fjárfestingar á Íslandi.
Hefur í viðræðum verið komið inn á þann
möguleika að þú getir keypt landið, eða þá leigt það af landeigendum eða ríkinu
ef það keypti landið?
„Fjárfestingastofa hafði samband við okkur í
síðustu viku og við höldum sambandi í gegnum fulltrúa minn á Íslandi," segir
Huang og lýsir ánægju sinni með að vera í sambandi við íslenskar
fjárfestingastofnanir. Hann ítrekar að í viðskiptum sínum leggi hann áherslu á
uppbyggingu ferðaþjónustusvæða fremur en einstakra hótela. „Ég byggi upp svæði,
kaupi land eða leigi eftir því sem hentar starfseminni. Reyndar leigi ég
yfirleitt land frekar en að kaupa, svo ég er opinn fyrir viðræðum um hvers
konar form á fjárfestingunni. Svo lengi sem ekki er lokað á viðræður er ég
reiðubúinn að halda áfram; kaupsýslumenn hafa alltaf þolinmæði í
samningaviðræðum."
Iðnaðarráðherra hefur í fjölmiðlum sagst
reiðubúin til viðræðna um fjárfestingar við Huang. Hann segist aðspurður
spenntur fyrir því að koma aftur til Íslands og ræða fjárfestingarmöguleika.
Hann verði hvort eð er tíður gestur á Íslandi enda eigi hann þar gamla vini.
Af hverju „allt þetta land"?
Þegar Huang er spurður hvort hann þurfi „allt
þetta land" segir hann: „Ég kom ekki með stækkunargler frá Kína til Íslands í
leit að landi en þetta er það land sem mér var boðið að fjárfesta í. Ástæðan
fyrir því að ég hafði áhuga og ákvað að fjárfesta í hugmyndinni er sú að hún er
í samræmi við ferðaþjónustuhugmyndir mínar og hvernig ég stunda viðskipti í
víðara samhengi. Ég held að það gæfi ekki mikið af sér að setja upp eitt hótel
einhvers staðar á Íslandi. En ef ég byggi upp ferðaþjónustu og græði upp
eitthvað af auðninni og hæðunum og sé fyrir viðeigandi afþreyingu þá verður hún
mjög aðlaðandi fyrir flesta ferðamenn. Ég vonast til að þeir eyði minnst þremur
til sjö dögum af frítíma sínum þar. Þannig gefur hver ferðamaður meira af sér,
Kínverjar, Evrópubúar, Bandaríkjamenn, Asíubúar og Rússar og efnahagslegur
grunnur fyrir svæðið er byggður upp."
Hugmyndin um golfvöll þykir nokkuð langsótt
t.d. vegna veðurfars. Hvert er þitt mat?
„Ég ætla að byggja upp vistvænan golfvöll í
sátt við vistkerfið á svæðinu." Þar séu allir þættir fyrir hendi. Grasið á
svæðinu sé hægt að rækta fyrir flatirnar. Ekki sé ætlunin að halda stórmót á
vellinum enda góðir golfvellir í nágrenninu. Þótt áskorun felist í að byggja
upp vistvænan golfvöll, sérstaklega með tilliti til umhverfissjónarmiða, þá
þurfi litla fjárfestingu til þess.
Hvað veðurfarið varðar segir Huang það sína
reynslu að ferðaþjónustusvæðum heimsins sé almennt skipt í háannatíma og tímann
utan hans, háð veðurfari. „Reyndar minnir veðurfarið á Íslandi nokkuð á
Khasgar, svæði í norðvesturhluta Kína, þar sem ég rek stóra ferðaþjónustu;
langir vetur og stutt sumur. Við höfum reynslu af því að eiga við mismunandi
veðurfar og myndum verða vel undirbúin fyrir að nýta hverja árstíð sem best."
Vestrænir fordómar
Í umræðu um landakaup þín hefur komið fram
gagnrýni á reynslu Svía af tilteknum kínverskum fjárfestum.
„Þetta eru fordómar Vesturlanda gagnvart
kínverskum fjárfestum. Við höfum fjárfest í Bandaríkjunum við góðan orðstír. Ég
er formaður Kínadeildar í náttúruverndarsamtökunum American Nature Concervancy
Association, sem vinnur mikilvægt starf við að vernda skóga og villta náttúru í
Afríku og Kína," segir Huang en hann hafi komið að vernd fornra kínverskra
þorpa og eitt þeirra hafi farið á heimsminjaskrá árið 2000.
„Ég hef haft tækifæri til að ræða ábyrgð
kínverskra fjárfesta við þá sem hafa gert slíkar athugasemdir og ég geri það
fúslega. Þegar litið er til 30 ára þróunar kínversks markaðshagkerfis tel ég að
ég sé vel liðinn og heiðarlegur og trúi því að ég hafi lagt eitthvað fram til
heimsins og alþjóðavæðingar."
Segist vilja íslenskt vinnuafl
Einnig hefur verið rætt um hvort þú munir nýta
þér innlent vinnuafl ef af fyrirhugaðri uppbyggingu verður?
„Auðvitað mun ég nota mér íslenskt vinnuafl
við uppbyggingu verkefnanna. Það er sama hvar ég hef fjárfest, í Kína eða
Bandaríkjunum, ég hef alltaf haldið mig við þá grundvallarreglu að
fjárfestingarnar skili sér til fólksins á svæðinu." Þetta sé lykilþáttur í
velgengni Zhongkun í Kína og Bandaríkjunum.
Komið hefur fram að þú vildir tengja
þjóðgarðinn í Jökulsárgljúfrum við land Vatnajökulsþjóðgarðs. Hvernig væri það
gert, en nú á ríkið 25% af landi Grímsstaða?
Huang segist mikill umhverfisverndunarsinni og
vísar aftur til þess að hann er formaður Kínadeildar í náttúruverndarsamtökunum
American Nature Concervancy Association. Umhverfisráðuneytið hafi þegar farið
fram á að hluti landsins verði gerður að þjóðgarði. Að hans áliti sé það mjög
viðeigandi og hann myndi styðja það í samvinnu við ríkisstjórnina.
Í dag, 8. desember,
eru 40 ár síðan Ísland og Kínverska alþýðulýðveldið tóku upp stjórnmálasamband.
Um aðdraganda þessa merkisatburðar segir svo í bók Péturs J. Thorsteinssonar,
Utanríkisþjónusta Íslands og utanríkismál á bls. 1069: „Hinn 10 nóvember 1971 gekk
Sigurður Bjarnason sendiherra í Kaupmannahöfn á fund kínverska sendiherrans þar
samkvæmt fyrirmælum utanríkisráðuneytisins og tilkynnti honum að ríkisstjórn
Íslands óskaði að semja við Pekingstjórnina um stjórnmálasamband. Um viku
seinna bárust jákvæð svör Kínverja. Engin vandkvæði voru á samningum því að
Ísland hafði engin tengsl við ríkisstjórnina á Formósu (Taiwan). Viðræður fóru
síðan fram á milli sendiráða Íslands og Kína í Kaupmannahöfn og 14. desember 1971
var undirritað samkomulag um stjórnmálasambandið".
Ísland varð þar
með 69. landið til að taka upp stjórnmálasamband við Kína, síðast
Norðurlandana. Kínverjar opnuðu sendiráð í Reykjavík árið eftir og var Chen Dong skipaður fyrsti
sendiherra þeirra með aðsetur á Íslandi. Íslendingar opnuðu sitt
sendiráð í Kína árið 1995 og var Hjálmar W. Hannesson fyrsti sendiherra Íslands gagnvart Kína með aðsetur í Peking.
Magnús Björnsson
Chen Dong var fyrsti sendiherra Kínverska alþýðulýðveldisins gagnvart íslandi með aðsetur í Reykjavík. Hann var sendiherra Kína á Íslandi til ársins 1977 þegar hann tók við stöðu sendiherra Kína í Austur-Þýskalandi. Hann lést fyrr á þessu ári, 97 ára að aldri.
Hefði
ekki verið sjálfsögð kurteisi að tala við manninn - kannski skoða
möguleika til samstarfs? Hingað til hefur þjóðinni staðið mest ógn af
kaupum Íslendinga í útlöndum á fasteignum. En ekki öfugt. Er þá ekki
réttað setja í lög jafnframt að Íslendingum sé bannað að kaupa
fasteignir erlendis?
Hrafn Gunnlaugsson
Ákvörðun innanríkisráðherra Ögmundar Jónassonar um að neita félagi kínverska fjárfestisins Huang Nubo um kaup á Grímstöðum á Fjöllum hefur varla farið fram hjá nokkrum manni. Olli þessi neitun þvílíkum titringi í samfélaginu að ætla mætti að jafnvel ríkisstjórn landsins væri komin að því að falla.
Þegar þetta er skrifað hefur margt verið sagt um þetta mál og sitt sýnist hverjum.
Ég ætla að leyfa mér að lýsa yfir miklum vonbrigðum með þessa ákvörðun. Þarna höfum við trúlega misst að einstöku tækifæri sem ekki bara snýst um þennan einstaka fjárfesti heldur marga kínverska athafnamenn sem hafa hug á að koma fjármagni úr landi. Það er nefnilega þannig að þrátt fyrir alla umræðuna um að skáldið og náttúruunnandinn Huang Nubo sé flugumaður kínverska Kommúnistaflokksins er ekki ósennilegt að hugmyndir hans um að fjárfesta erlendis séu til þess ætlaðar að koma fjármagni úr landi og dreifa þeirri áhættu sem athafnamenn í Kína búa við innanlands. Kínverskir viðskiptajöfrar, sérstaklega af stærðargráðu Nubos, verða að halda góðum tengslum við Kommúnistaflokkinn og þarf ekki nema að móðga einn háttsettan embættismann til að stofna öllu viðskiptaveldinu í hættu. Það að vera kapitalisti í Kína er nefnilega mjög áhættusöm starfsgrein, kannski næst á eftir því að vera kolanámumaður eða yfirmaður matvælaeftirlitsins. Jafnframt kraumar undir í kínversku samfélagi og einhverjar líkur á breytingum á stjórnmálasviðinu sem ómöguleg er að segja til um hvernig muni þróast  Því hafa kínverskir auðmenn undanfarin misseri gert töluvert að því að nota fjárfestingar erlendis sem afsökun til að koma fjármagni úr landi í öruggara skjól. Eflaust hefðu einhverjir fleiri slíkir hugsað til Íslands en telja verður það afar ólíklegt eftir þetta.
Annað glatað tækifæri í þessu máli er Nubo sjálfur. Hann virðist vera (ég þekki manninn ekki neitt) mjög óhefðbundinn kínverskur viðskiptajöfur. Er ljóðskáld og mikill útivistamaður sbr. ferðir hans á Everestfjall ásamt ferðum á norðurslóðir auk þess sem hann hefur afar skemmtilega tengingu við Ísland frá háskólaárum sínum. Hljómar hreint mjög spennandi sem fyrsti alvöru kínverski athafnamaðurinn til að haslar sér völl hér á landi. En því miður er þetta tækifæri trúlega runnið okkur úr greipum og tel ég engar líkur á að hann vilji eitthvað meira við okkur tala. Stjórnsýsla Ögmundar þar sem Nubo var ekki einu sinni virtur viðlits er með þeim eindæmum að trúlega er of seint að bjarga nokkru. Hvernig þetta mál hefur verið unnið hefur eflaust orðið til þess að Nubo teljir sig hafa tapað andlitinu í samskiptum við íslensk stjórnvöld og það er ekki talið gott í Kína.
Magnús Björnsson
Ágætu lesendur
Hér með er
bloggsíðu Kínversk- íslenska menningarfélagsins (KÍM) hleypt af stokkunum.  Undirritaður hefur verið ráðinn ritstjóri til
verksins. Jafnframt er heimasíða félagsins (www.kim.is)
í vinnslu og verður virk á næstu dögum.
Umfjöllunarefni
bloggsins og heimasíðunar er Kína og samskipti Íslands og Kína. Af nógu er að
taka enda er Kína í dag endalaus uppspretta umræðu og skoðanaskipta. Megin
áherslan er á að kynna kínverska menningu og samfélag og ber ritstjóri þá von í
brjósti að bloggið og vefurinn verði leiðandi í umræðunni um málefni Kína.
Ritstjóri vonast
eftir að fá sem flesta að borðinu og hvetur alla sem telja sig hafa eitthvað
fram að færa í þessu efni að hjálpa til við að gera þetta blogg og heimasíðu
félagsins sem best úr garði. Tekið er við greinum til birtingar á netfangi KÍM,
kim@kim.is, einnig má senda póst beint til
ritstjóra á netfangið: magnusbj@mi.is
Ákveðið hefur verið
að virkja ekki athugasemdakerfi bloggsins en lesendur eru velkomnir að senda
inn athugasemdir við greinar beint á ofangreind netföng. Munu þær verða birtar ef þær bæta einhverju við umræðuna.
Magnús
Björnsson ritstjóri
Undanfarið hefur starfsnefnd KÍM unnið að því að hressa uppá útlit heimasíðu félagsins. Til stendur að nýja síðan komist í gagnið fyrir aðalfundinn 15. október. Félagsmenn og aðrir eru hér með hvattir til að skoða nýju síðuna og eru allar athugasemdir um útlit og efni vel þegnar.
Aðalfundur Kínversk-íslenska menningarfélagsins (KÍM) verður haldinn laugardaginn 23. október nk. kl. 16:00 í sal Bókasafns Seltjarnarness. Salurinn er á 2. hæð Eiðistorgs til vinstri við dyr bókasasafnsins.
Á dagskrá verða venjuleg aðalfundarstörf.
Á fundinum verður fjallað um nýstofnaðan menningarsjóð Kína og Íslands.
Þá verða kynnt markmið sem unnið er að fyrir félagið og rætt um starfið framundan. Stjórnin hefur hug á að kjörið verði í nokkrar starfsnefndir til þess að auka innra starf félagsins.
Félagsmenn eru hvattir til að mæta og gjarna taka með sér gesti. Nýir félagsmenn eru boðnir hjartanlega velkomnir.
Á fundinum verður lagt til að 6. gr. laga félagsins hljóði svo:
6. gr.
Félagsgjald skal ákveðið á aðalfundi. Heimilt er að veita afslátt af félagsgjaldi. Skulu einkum njóta hans námsmenn, ellilífeyrisþegar og öryrkjar. Þá er heimilt að veita fjölskyldum afslátt þannig að einungis einn einstaklingur á hverju heimili greiði fullt gjald.
Stjórn félagsins skal leggja fram tillögur um slíkan afslátt á aðalfundi.
Að loknum aðalfundi verður boðið í teiti (partí) á heimili Guðrúnar Margrétar Þrastardóttur að Tröllateigi 43, Mosfellsbæ.  --  Þátttaka óskast vinsamlegast tilkynnt í síma 5611703, 8973766 eða með tölvupósti á netfangið kim@kim.is, fyrir kl. 22 á fimmtudagskvöld 21. október.
Stjórn KÍM