Bloggsíða KÍM virkjuð

Ágætu lesendur

 Hér með er bloggsíðu Kínversk- íslenska menningarfélagsins (KÍM) hleypt af stokkunum.  Undirritaður hefur verið ráðinn ritstjóri til verksins. Jafnframt er heimasíða félagsins (www.kim.is) í vinnslu og verður virk á næstu dögum.

Umfjöllunarefni bloggsins og heimasíðunar er Kína og samskipti Íslands og Kína. Af nógu er að taka enda er Kína í dag endalaus uppspretta umræðu og skoðanaskipta. Megin áherslan er á að kynna kínverska menningu og samfélag og ber ritstjóri þá von í brjósti að bloggið og vefurinn verði leiðandi í umræðunni um málefni Kína.

Ritstjóri vonast eftir að fá sem flesta að borðinu og hvetur alla sem telja sig hafa eitthvað fram að færa í þessu efni að hjálpa til við að gera þetta blogg og heimasíðu félagsins sem best úr garði. Tekið er við greinum til birtingar á netfangi KÍM, kim@kim.is, einnig má senda póst beint til ritstjóra á netfangið: magnusbj@mi.is

Ákveðið hefur verið að virkja ekki athugasemdakerfi bloggsins en lesendur eru velkomnir að senda inn athugasemdir við greinar beint á ofangreind netföng. Munu þær verða birtar ef þær bæta einhverju við umræðuna. 

Magnús Björnsson ritstjóri


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband