TVEGGJA HEIMA SÝN
Sýning á landslagsmálverkum Lu Hung, Ráđhúsi Reykjavíkur, 20.-30. Júní 2013.
Sýningin verđur opnuđ kl. 16:00 fimmtudaginn 20. júní og eru allir hjartanlega velkomnir.
Kínversk-íslenska menningarfélaginu er ţađ sérstök ánćgja ađ efna til sýningar á verkum Lu Hong. Sýningin er haldin í tilefni af 60 ára afmćli félagsins. Tilgangur hennar er ađ kynna hina stórmerku listakonu og ţćr ađferđir sem hún beitir til ađ túlka íslenskt landslag. Jafnframt vill félagiđ vekja athygli á framlagi Íslendinga af Kínverskum ćttum til íslenskrar menningar og ţeirrar auđlegđar sem hún býr yfir. Lu Hong tvinnar saman í verkum sínum íslenska ţjóđarvitund og ćfafornar hefđir kínverskrar myndlistar.
Lu Hong fćddist í Peking 7. september 1957. Hún sýndi fljótlega myndlistarhćfileika og fékk sérstaka leiđsögn. Á tíma menningarbyltingarinnar (1966 1976) tók hún ţátt í samsýningum ćskufólks í Peking. Fimmtán ára ađ aldri hóf hún skipulegt myndlistarnám undir handleiđslu Shu Daxions, eins mikilsvirtasta núlifandi málara í hefđbundnum kínverskum stíl. Lu Hong fékk inngöngu í Kínverska listaháskólann í Peking (ä¸ĺ¤®çľĹ˝ćŻĺ¦ é˘ Shongyang Meishu Xueyuan), ćđsta myndlistarskóla Kína, áriđ 1981 međ kínverska landslagmálun (山水 shanshui) sem sérgrein. Inngönguskilyrđi eru mjög ströng, einungis sex nemendur voru teknir í ţessa deild skólans ţađ ár og oft eru engir nýir nemendur teknir inn. Lu Hong er fyrsta konan sem lauk námi í kínverskri landslagsmálun frá Kínverska listaháskólanum í Peking. Hún tók árlega ţátt í samsýningum nemenda og áriđ 1984 voru verk eftir hana valin á sýningu međ úrvali verka eftir málara víđsvegar ađ í Kína.
Lu Hong útskrifađist frá Kínverska listaháskólanum voriđ 1985. Áriđ eftir fluttist hún til Japans ţar sem hún kynnti sér japanska málverkahefđ og lagđi stund á japönsku. Hún hélt einkasýningu í Tokyo í maí 1989. Lu Hong kynntist Íslandi í gegnum íslenska námsmenn í Tokyo. Hún fékk mikinn áhuga á landinu og íslenskri náttúru, sem er mjög frábrugđin kínversku og japönsku landslagi. Hingađ kom hún svo í mars 1990.
Síđan hefur hún reynt ađ kynnast landinu og túlkađ ţađ sem hún hefur séđ međ ađferđ kínverskrar landslagsmálunar. Hún giftist íslenskum manni áriđ 1991 og býr nú í Garđabć. Ţau eiga tvćr dćtur. Fyrstu sýningu sína á Íslandi hélt hún í nóvember 1990. Var hún fyrsta alvarlega tilraun kínversks málara til ađ túlka íslenska náttúru međ ađferđum hefđbundinnar kínverskrar málaralistar. Myndir sínar málar hún međ kínversku bleki og vatnslitum á ţunnan bambuspappír.
Sýningar á Íslandi:
1. Ísland í kínversku bleki, nóvember 1990, Hlađvarpanum
2. Hótel Selfossi, september 1991
3. Íslenskir fossar í kínversku bleki 1992, Hlađvarpanum
4. Ísland er landiđ, september 1995, Gallerí Fold
5. Landslagsmyndir, september 1996, Gallerí Fold
6. Fjöll, ţoka, hestar, september 1997, Gallerí Fold
7. Íslensku fjöllin, október nóvember 2000, Gallerí Fold
Flokkur: Menning og listir | 18.6.2013 | 17:43 (breytt kl. 17:45) | Facebook
Fćrsluflokkar
Maí 2024 | ||||||
S | M | Ţ | M | F | F | L |
---|---|---|---|---|---|---|
1 | 2 | 3 | 4 | |||
5 | 6 | 7 | 8 | 9 | 10 | 11 |
12 | 13 | 14 | 15 | 16 | 17 | 18 |
19 | 20 | 21 | 22 | 23 | 24 | 25 |
26 | 27 | 28 | 29 | 30 | 31 |
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (19.5.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku:
- Frá upphafi: 0
Annađ
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku:
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfćrt á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bćta viđ athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hćgt ađ skrifa athugasemdir viđ fćrsluna, ţar sem tímamörk á athugasemdir eru liđin.